Fagnar því að seðilgjöld verði felld niður 7. janúar 2008 15:31 MYND/Hilmar Þór
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, fagnar því að fella eigi niður seðilgjöld og væntir þess að síðari skref sem stigin verða í tengslum við gjaldtöku banka og sparisjóða verði í þágu neytenda. Viðskiptaráðherra kynnti í morgun skýrslu starfshóps sem fór yfir gjaldtöku fjármálafyrirtækja. Þar kom fram að til stæði að fella niður seðilgjöld, takmarka álagningu uppgreiðslugjalda og jafnframt að óheimilt verði að innheimta svokallaðan FIT-kostnað nema það hafi stoð í samningi. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, fagnar því að banna eigi seðilgjöld. „Þetta er fyrsta skrefið og við væntum þess að síðari skref verði einnig í þágu neytenda því í þessum viðskiptum hallar verulega á neytendur," segir Jóhannes og bendir á að eftir eigi að vinna betur úr hugmyndum um uppgreiðslugjald. Um önnur skref í málinu segir Jóhannes að horfa þurfi til löggjafar á þessu sviði. Um FIT-kostnaðinn, það er kostnað vegna óheimils yfirdráttar, segir Jóhannes að Neytendasamtökin hafi lagt áherslu á að hann verði sá sá sannanlegi kostnaður sem viðkomandi banki eða sparisjóður verði fyrir vegna óheimils yfirdráttar. „Við höfum bent á að neytendur eru að greiða dráttarvexti og til viðbótar hátt krónutölugjald. FIT-kostnaður á að vera í samræmi við kostnað banka og sparisjóða. Þetta á ekki að vera þeim tekjulind," segir Jóhannes. Aðspurður segir Jóhannes að Neytendasamtökin hafi ekki reiknað nákvæmlega út hver ávinningurinn verði fyrir neytendur af niðurfellingu seðilgjalda en bendir á að fólk geti komist hjá seðilgjöldum með því að afþakka seðla og láta skuldfæra reikninga. Fyrir þá sem enn fái alla reikninga senda heim í seðlum geti kostnaðurinn þó að líkindum skipt tugum þúsunda á ári.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira