Björgvin G. mótfallinn virkjunum í Þjórsá 3. janúar 2008 18:39
Viðskiptaráðherra vill að virkjunum í Þjórsá verði slegið á frest eða út af borðinu. Þar með hafa tveir ráðherrar Samfylkingar lýst sig andsnúna Þjórsárvirkjunum. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kveðst ekki geta fellt neina dóma yfir þessum virkjunum fyrr en málið kemur inn á hans borð. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra lýsti því yfir á RÚV í gær að virkjanaáform í neðri hluta Þjórsár væru arfur gamalla hugmynda og að það orkaði mjög tvímælis að setja niður lón í byggð. Virkjanaáformin hafa mætt harðri andstöðu heimamanna og Vinstri grænir hafa sakað Landsvirkjun um að beita sveitarstjórnarmenn í Flóahreppi ægivaldi, hörku og linnulausum þrýstingi. Einn þeirra sagði þögn umhverfisráðherra, iðnaðarráðherra og utanríkisráðherra skerandi. Umhverfisráðherra hefur nú lýst skoðun sinni. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagðist í samtali við fréttastofu í dag hafa fullan skilning á sjónarmiði Þórunnar. Hins vegar séu tormerki á að hann tjái sig, enda hafi hann "sjálfstæða rannsóknarskyldu ef til umsókna um virkjanir og hugsanlega eignarnáms kæmi," og geti því ekki "kveðið upp neina dóma fyrr en slíkar umsóknir, og rökin með þeim, komi á hans borð." Þá hefur viðskiptaráðherra kallað eftir því við Landsvirkjun að koma með mildari útfærslu að virkjunum í Þjórsá, nú þegar ljóst er að orkan þaðan verði ekki sett í stóriðju. Í samtali við Stöð 2 sagði hann besta kostinn í stöðunni vera þann að áformum um virkjun í Þjórsá verði slegið á frest eða hætt við þær. Þá herma heimildir fréttastofu að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hafi talað á neikvæðum nótum um virkjanir í Þjórsá á lokuðum fundum. Sé Ingibjörg mótfallin virkjunum í ánni er staðan sú að hálfur þingflokkur Samfylkingarinnar er á móti hugmyndinni.
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Innlent Fleiri fréttir Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en á hinum Norðurlöndunum Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Sjá meira