Lögreglan lét 700 mál niður falla á einu bretti Andri Ólafsson skrifar 18. ágúst 2008 11:08 Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu lét um 700 kærumál niður falla á einu bretti í byrjun þessa árs. Þetta var gert til þess að hreinsa til í málaskrá hin nýstofnaða embættis sem varð til með sameiningu lögreglunnar í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Í kjölfarið varð sprenging í kærum til Ríkissaksóknara en þangað geta þeir leitað sem ósáttir eru með þá ákvöðrun lögreglu að láta mál sín niður falla. Alls bárust Ríkissaksóknara 23 kærur í febrúar á þessu ári þar sem athugasemdir voru gerðar við ákvörðun lögreglunnar um að hætta rannsókn á kærumálum. Til samanburðar má geta að aðeins fjórar kærur bárust á sama tíma í fyrra Það voru lögfræðingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, með Jón H.B. Snorrason í fararbroddi, sem tóku ákvörðun um hvaða mál skyldi hætta að rannsaka, að höfðu samráði við yfirmenn rannsóknardeilda. Ákvarðanir voru teknar með tilliti til þess hvort líklegt væri að ákært yrði í viðkomandi málum eða hvort að sakfelling næðist. Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir að ráðgert sé að taka aftur til í málaskrá embættisins í byrjun næsta árs. Það sé nauðsynlegt að fara reglulega yfir málaskrána svo ekki sé verið að halda málum opnum sem ekki munu leiða til sakfellingar. Kærumál hjá embættinu skipta þúsundum. Stefán vildi ekki staðfesta að málin sem látin hefðu verið niður falla í byrjun þessa árs væru 700 talsins. Embætti hans hefur ekki viljað verða við beiðni Vísis um taka saman nákvæmar upplýsingar um málið. Vísir fékk hins vegar þær upplýsingar hjá Ríkissaksóknara að málin væru 700 talsins. Aðspurður sagði Stefán ekki draga það mat Ríkissaksóknara í efa.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira