Tiltekt nauðsynleg til að auka skilvirkni Andri Ólafsson skrifar 18. ágúst 2008 12:08 Stefán Eiríksson lögreglustjóri ásamt Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra
Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir það mikilvægt að embættið festist ekki í gömlum kærumálum þar sem á litlu er að byggja. Nauðsynlegt sé að auka skilvirkni í meðferð kærumála. Eins og Vísir greindi frá í dag lét embætti Stefáns um 700 mál niður falla í byrjun þessa árs. Þetta var gert til þess að taka til í málaskrá embættisins. Stór hluti þeirra mála sem látin voru niður falla voru mál sem embættið erfði frá lögreglunni í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði en þau lögregluembætti voru lögð niður til þess að rýma fyrir nýstofnuðu embætti Stefáns, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málin sem látin voru niður falla voru af öllum stærðum og gerðum. Þau áttu það hins vegar öll sameiginlegt að hafa verið lengi í rannsókn og þóttu ekki líkleg til að leiða til sakfellingar að mati lögfræðinga lögreglunnar. Stefán segir að með þessari tiltekt hafi verið reynt að gera meðferð mála og rannsókn þeirra eins markvissa og kostur er. "Við vildum tileinka okkur ákveðið gegnsæi og aukna skilvirkni í okkar vinnubrögðum," segir Stefán. Hann vill að ákvarðanir um niðurfellingu mála séu teknar með skipulögðum og formlegum hætti frekar en tilviljankenndum. "Og upphaf hvers árs er góður tími til þess að fara yfir stöðu mála og taka stöðuna á málaskránni. Ákveða hvort að rétt sé að halda áfram með rannsókn mála eða hvort að rétt séð að láta þau niður falla. Það er það sem við ákváðum að gera í byrjum þessa árs og við hyggjumst gera þetta svona áfram." Vísir hefur óskað eftir nákvæmum upplýsinum um hversu mörg mál voru látin niður falla í byrjun þessa árs. Þau svör fengust frá lögreglunni að það útheimti of mikla vinnu af hálfu embættisins og synjaði beiðninni. Vísir hyggst kæra þessa synjun til úrksurðarnefndar upplýsingamála.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira