ASÍ hafnar ásökunum Haga 18. ágúst 2008 12:20
Dómkvaddir matsmenn hafa staðfest að virðisaukaskattslækkun á matvælum skilaði sér að fullu til viðskiptavina verslana 10-11 - öndvert við það sem fram kom í verðkönnunum Alþýðusambandsins. Niðurstaðan er áfellisdómur yfir verðlagseftirliti ASÍ, segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Hann segir óvönduð vinnubrögð eftirlitsins grófa atlögu að orðspori verslanakeðjunnar. ASÍ vísar þessum þungu ásökunum alfarið á bug. Verðlagseftirlit ASÍ var fengið það hlutverk af stjórnvöldum að halda úti öflugu eftirliti með matarverði áður og eftir að virðisaukaskattur á mat var lækkaður þann fyrsta mars í fyrra. Hagar, sem rekur meðal annars Bónus og 10-11, brást hart við þegar verðlagskannanir ASÍ tóku að birtast og sökuðu sambandið fyrir ónákvæm vinnubrögð við verðlagseftirlitið sem skiluðu að þeirra sögn röngum niðurstöðum og villandi. Kannanir ASÍ bentu til að verslanir 10-11 hefði ekki skilað skattalækkuninni til neytenda og verð hefði aðeins lækkað um 4,4%. Hagar héldu því fram að verð hefði lækkað öllu meira, eða um 6,1%. Hagar fóru síðan í hart, bönnuðu ASÍ að kanna verð hjá sér, og fóru í dómsmál gegn sambandinu. Héraðsdómur Reykjavíkur kvaddi til matsmenn til að meta verðlækkun í verslunum 10-11 og fengu þeir fullan aðgang að öllum gögnum hjá fyrirtækinu. Matsmennirnir hafa nú skilað af sér og niðurstaða þeirra er skýr. Það er samdóma álit þeirra að raunlækkun í prósentum hjá verslunum 10-11 var í fullu samræmi við það sem vænta mátti. Innkaupakarfa matvæla hjá 10-11 hafi lækkað um rétt tæp 9 prósent. Í yfirlýsingu sem var sett inn á vef ASÍ fyrir hádegi segir að matsgerðin geti á engan máta verið áfellisdómur yfir starfi verðlagseftirlitsins. Þar sé einungis mat á eigin gögnum fyrirtækisins úr tölvukerfi þess og engan undri að það gefi viðunandi niðurstöðu fyrir Haga. ASÍ safni hins vegar upplýsingum um þau verð sem fólk hafi aðgang að á hillum verslana.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira