Dagbók Matthíasar: Forsetinn notaði kreditkort Alþýðubandalagsins 18. ágúst 2008 00:12
Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, birti um helgina enn eitt brotið úr dagbókum sínum sem hann hélt á meðan hann var ritstjóri. Þar kemur fram í samtali við Svavar Gestsson að Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti og fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, hafi verið með kreditkort frá flokknum og notað það óspart. Orðrétt segir Matthías að Svavar hafi sagt að hann [Ólafur Ragnar, innsk. blm.] hafi komið sér upp Visa-gullkorti í nafni Alþýðubandalagsins og notað það óspart. Svavar er þó ekki hættur að sögn Matthíasar og talar því næst um fjármálaóreiðu sem hann segir hafa einkennt formennskutíð Ólafs Ragnars hjá Alþýðubandalaginu. „Þegar Margrét Frímannsdóttir tók við flokknum bárust henni reikningar eins og skæðadrífa og hún vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Það var viðskilnaður Ólafs Ragnars. Þegar Margrét tók við af honum skuldaði Alþýðubandalagið 53 milljónir króna! segir Svavar. Ólafur Ragnar gerði þá samning við Landsbankann um að Alþýðubandalagið fengi 107 milljón króna lán og greiddi það með þeim 20 milljón króna árlegum afborgunum sem það fékk í blaðstyrki frá Alþingi ár hvert. Þar var tekið fram að Alþýðubandalagið greiddi þetta meðan Þjóðviljinn kæmi út, en hann dó drottni sínum einu og hálfu ári síðar, svo að Landsbankinn varð að afskrifa skuldina sem eftir var!" segir í dagbókinni.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira