10 þúsund manns á landbúnaðarsýningu og Töðugjöldum 24. ágúst 2008 11:16 Frá landbúnaðarsýningunni. Mynd: landbunadarsyning.is
Yfir 10.000 manns hafa lagt leið sína á Landbúnaðarsýningu og Töðugjöld á Hellu sem hófust á föstudag og og standa til kl. 18 í dag. Fjölmenni var á kvöldvöku í gærkvöldi sem lauk með varðeldi og flugeldasýningu. Árla morguns var aftur mættur hópur sýningargesta í Rangárhöllina, í þetta skiptið til að fylgjast með úrslitaleik Íslendinga og Frakka í handbolta á Ólympíuleikunum. Veður var mun betra á Hellu nú í morgun en það var í gær, norðaustan gola, þurrt og skýjað en annað slagið brýst sólin fram. Að sögn Jóhannesar Hr. Símonarsonar, framkvæmdastjóra Landbúnaðarsýningarinnar, er aðsóknin framar öllum vonum og sérstaklega ánægjulegt að fólk hafi ekki látið votviðri síðustu daga á sig fá. Dagskrá þessa síðasta sýningardags er fjölbreytt en hún hófst með gangtegundasýningu íslenska hestsins og litasýningu sauðfjár. Eftir hádegi verður útimessa þar sem séra Guðbjörg Arnardóttir messar og kirkjukórar Odda- og Þykkvabæjarsókna syngja. Meðal annarra atriða á lokadegi sýningarinnar eru Bændaglíma Suðurlands, skeifnasmíði, dómslýsing á stóðhesti og smalahundasýning. Sýningin teygir anga sína út fyrir aðalsýningarsvæðið, því kúabændur á bæjunum Bjólu, Helluvaði og Selalæk í Rangárþingi ytra og hrossaræktendur á Feti bjóða gesti velkomna til að kynna sér bústörfin á vettvangi. Búin eru opin kl. 16-19 í dag.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Sjá meira