Innlent

Allnokkur söluaukning á nautakjöti á síðustu tólf mánuðum

MYND/Pjetur

Sala á innlendu nautakjöti hefur aukist um nærri ellefu prósent á síðustu tólf mánuðum eftir því sem segir á vef Landssambands kúabænda.

Alls voru seld 3.710 tonn frá 1. maí í fyrra til 30. apríl í ár en á þessu tímabili voru framleidd 3.740 tonn. Þrjátíu tonn eru því eftir og samanlagðar birgðir af nautakjöti í landinu eru nú um 55 tonn, sem nemur rúmlega þriggja daga slátrun og verður að teljast innan mjög skikkanlegra marka að sögn kúabænda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×