Innlent

Bush og Medvedev senda Ólafi Ragnari heillaóskir

Frá embættistöku forsetans fyrr í mánuðinum.
Frá embættistöku forsetans fyrr í mánuðinum.

Helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, heillaóskir í tilefni af nýju kjörtímabili forseta og embættistöku 1. ágúst. Fram kemur í tilkynningu forsetaembættisins að meðal þeirra sem sent hafi skeyti séu Bush Bandaríkjaforseti, Medvedev Rússlandsforseti, Hu Jintao, forseti Kína, Akihito Japanskeisari og Horst Köhler, forseti Þýskalands.

„Í kveðju sinni þakkar George W. Bush forseta Íslands sérstaklega fyrir framlag hans við að kynna í Bandaríkjunum og víðar í veröldinni reynslu og þekkingu Íslendinga í nýtingu jarðhita og fyrir að hvetja af framsýni til hagnýtingar þeirrar tækni í þágu annarra þjóða.

Í kveðjum Hu Jintao forseta Kína og Medvedev forseta Rússlands koma fram sérstakar óskir um að efla á komandi árum samvinnu Íslendinga og Kínverja og Íslendinga og Rússa. Horst Köhler forseti Þýskalands fagnar sérstaklega í kveðju sinni væntanlegri opinberri heimsókn forseta Íslands til Þýskalands í október næstkomandi," segir enn fremur í tilkynningu forsetaembættisins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×