Lögregla stöðvaði framkvæmdir á vegum Ísafjarðabæjar Breki Logason skrifar 19. maí 2008 15:34 Halldór Halldórsson bæjarstjóri á ísafirði. MYND/Heiða
Nokkrar deilur hafa staðið milli Ísafjarðarbæjar og Hestamannafélagsins Hendingar vegna lagningar vegar yfir reiðvöll félagsins. Vegurinn er hluti af jarðgöngum sem fyrirhuguð eru til Bolungarvíkur. Ekki hefur náðst samkomulag um greiðslu bóta vegna reiðvallarins og var lögregla kölluð til og stöðvaði framkvæmdir á laugardaginn. Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði vonar að sátt náist í málinu. Forsaga málsins er sú að Hestamannafélagið hefur verið með hesthús og íþróttaaðstöðu í Hnífsdal í tæplega þrjátíu ár. Þegar ákveðið var að fara í að bora göng til Bolungarvíkur kom í ljós að gert er ráð fyrir að vegurinn sem liggur að göngnum fari yfir hluta reiðvallar sem Hestamannafélagið á. Ísafjarðarbær hefur þegar náð samkomulagi við hestamenn um uppkaup á hesthúsum á svæðinu og bauð þeim aðstöðu í Engidal í Skutulsfirði í staðinn. Hestamenn vilja hins vegar einnig fá bætur fyrir reiðvöllinn. „Við buðum þeim að reisa reiðvöll á nýja svæðinu og það tilboð hefur legið fyrir lengi. Þeir eru með einhverjar hugmyndir um að reisa reiðhöll og vilja nota bæturnar upp í þá framkvæmd. Þeirra mat á reiðvellinum er hinsvegar þrisvar sinnum hærra en okkar mat," segir Halldór en bæjarstjórn frestaði að gefa út framkvæmdarleyfi vegna vegalagningarinnar þann 2.apríl sl. vegna þess að ekki hafði náðst sátt í málinu með reiðvöllinn. Á laugardaginn kölluðu hestamenn síðan til lögreglu sem stöðvaði framkvæmdir á svæðinu. „Við beittum fyrir okkur pólitíinu svo við værum marktækir, þetta var nú allt gert í mestu vinsemd," segir Marinó Hákonarson, formaður hestamannafélagsins, sem staðfestir að deilan snúist um krónur og aura vegna reiðvallarins. Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði vill þó meina að framkvæmdir hafi ekki verið hafnar. „Í fyrra voru þeir að skafa jarðveg frá berginu til þess að athuga með þykkt og annað. Þá fór einhver jarðvegur yfir endann á reiðvellinum," segir Halldór og bendir á að á laugardaginn hafi verktakinn einungis verið að koma sér fyrir á svæðinu enda vilji hann hefjast handa sem fyrst. „Það voru engar framkvæmdir við vegalagninguna farnar í gang." Halldór er þó ekki í vafa um að málið muni leysast. „Fyrst það ber svona mikið á milli þá verðum við bara að kalla til dómskvadda matsmenn, þetta leysist að lokum eins og öll svona mál."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Sjá meira