Berst við hvítblæði með bjartsýni að vopni 19. maí 2008 15:00 Sigrún með dóttur sína. Mynd/ úr einkasafni.
Versti parturinn við að upplifa beinmergsskipti er geislameðferðin. Þetta segir Sigrún Þórisdóttir, 25 ára gömul móðir, sem greindist með hvítblæði ekki alls fyrir löngu. Sigrún lagði land undir fót í byrjun maí og fór til Svíþjóðar í beinmergsskipti. „Svo ekki á morgun heldur hinn fer ég á einhvern annan spítala í Stokkhólmi þar sem ég verð rannsökuð og reiknuð út fyrir geislameðferðina sem er líklega á föstudag og laugardag. Það er víst versti parturinn af þessu. Svo eftir geislameðferðina fer ég í lyfjameðferð og með þessum tveimur meðferðum á að klára að eyða öllum mínum beinmerg og ég fæ nýjan," sagði Sigrún á bloggsíðu sinni daginn fyrir brottför til Svíþjóðar. Þegar Vísir hafði samband við Sigrúnu í morgun lét hún engan bilbug á sér finna enda hefur allt gengið vel hingað til. „Það er búið að gefa mér beinmerginn og ég er að bíða eftir því að hann fari að starfa," segir Sigrún. Hún segist hafa fengið smá aukaverkanir eftir beinmergsskiptin en sé mjög bjartsýn. „Það þýðir ekkert annað," segir hún. Sigrún fór ekki einsömul til Svíþjóðar heldur fylgdu foreldrar hennar, barnsfaðir og átta mánaða gömul dóttir hennar. Sigrún segir að vel gangi með litlu hnátuna og læknarnir hafi verið hrifnir af því að hún væri með. Þær hafa þó verið aðskildar undanfarna daga vegna þess að sú stutta hefur verið með hita og má því ekki fara til mömmu sinnar á spítalann. Sigrún segir að ef allt gangi vel verði hún líklega á spítala í eina til eina og hálfa viku í viðbót. „Síðan fæ ég að búa í íbúð í Svíþjóð," segir Sigrún, sem býst við því að koma til Íslands í ágúst. Það er dýrt fyrir stóra fjölskyldu að flytja búferlum í mánaðalanga sjúkrahúsreisu til Svíþjóðar. Vinkonur Sigrúnar safna því til styrktar henni og fjölskyldu hennar. Reikningsnúmerið er 0120 26 4029 og kennitalan 160383-4029.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira