Segir ísbirni ekki í útrýmingarhættu SB skrifar 4. júní 2008 15:52 Siggi ísmaður með tvo ísbjarnarhausa í fanginu. Þykir lostæti á Grænlandi. Mynd: Ólafur Kolbeinn Guðmundsson.
Hvurslags helvítis morðingjar eruð þið á Íslandi að drepa ísbirni!" segir Sigurður Pétursson - betur þekktur sem Siggi Ísmaður á Grænlandi. Hann dregur þó fljótt í land, "...nei, það er ekkert að því að drepa þessar skepnur ef maður étur bara kjötið." Siggi segir það alrangt að ísbjarnarstofninn sé í útrýmingarhættu. Stofninn á austurströndinni telji um 12- 14 þúsund birni en veiðikvótinn aðeins 40 dýr; vegna pólitískrar rétthugsunar Vesturlanda sé sífellt verið að gera Grænlendingum erfiðara fyrir að veiða dýrin. "Við borðum allavega ísbjörninn og verkum þá í staðinn fyrir að setja þá á söfn. En það eru allar þjóðir að skipta sér af þessu. Bandaríkjamennirnir eru verstir. En málið er að eina hættan sem steðjar af ísbjörnunum er vegna eiturefna. Og eiturefnin koma frá sömu þjóðunum og vilja friða dýrin!" Spurður út í ísbjarnardrápið hér heima, þar sem ísbjörn var felldur fyrir ofan Þverárfjallsveginn, segir Siggi að Íslendingar megi skjóta alla ísbirni heimsins sín vegna. "Manni finnst samt skrýtið að þeir séu í allskyns samþykktum að stoppa okkar veiðar en skjóta svo bara fyrsta ísbjörninn sem rekur á land" Siggi segir að ísbirnir séu tíðir gestir í smáþorpunum á Grænlandi. "Þeir hafa komið hérna, tuttugu, þrjátíu stykki í bæina í vetur. Það er búið að vera svo mikill ís. Yfirleitt hlaupa þeir bara á flótta en stundum þarf að skjóta í þá svefnlyfi. Það er engin hætta af þessu. Stundum fara þeir í hundamatinn ef þeir eru svangir og krakkarnir leika sér í kringum þá. Reyndar eru einhverjar sögusagnir um að þeir hafi étið eina kellingu á Svalbarða en ég veit ekkert meira um það." Sigurður Pétursson varð heimsfrægur þegar hann drap hákarl með berum höndum á veiðitúr á Austur-ströndinni. Hann býr í smábænum Kummiut og lifir á veiðum. Hann er einnig dyggur áhugamaður um skák og hefur verið í framvarðarsveit Hróksins í skákævintýrinu á Grænlandi.
Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Úr verslunarrekstri á „fínni útgáfuna“ af ítalskri knæpu Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira