Guðni væri sammála Birni ef hann skildi málið 20. apríl 2008 19:48 Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra.
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir í pistli á heimasíðu sinni að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins skilji ekki út á hvað vandi lögregluembættisins á Suðurnesjum gengur. Ef Guðni gæfi sér tíma til að kynna sér málið myndi hann hins vegar án efa snúast á sveif með Birni. Björn er að vitna til fundar sem Guðni og félagar hans héldu í Reykjanesbæ um málefni lögregluembættisins sem nokkrar deilur hafa staðið um síðustu vikur en þar eru þeir Björn og Jóhann Benediktsson lögreglustjóri ósammála um til hvaða ráða eigi að grípa. Björn vitnar í frétt í Fréttablaðinu sem sagði frá fundinum undir fyrirsögninni: „Segir deiluna persónulega", en þar er vitnað í Guðna. „Í fréttinni er hvergi að finna rök fyrir þessari fullyrðingu, enda er hún úr lausu lofti gripinn," segir Björn. Hann bendir á að í megintexta fréttarinnar sé sagt frá ræðu Guðna þar hann hafi sagt: „Það botnar enginn í því um hvað deilan snýst." „Af þessum orðum má ráða, að Guðni hafi ekki orðið neins vísari af þessum fundi sínum, enda var ekki efnt til hans til að leysa vanda embættisins heldur til að magna ómálefnalegar árásir á mig vegna einhvers, sem framsóknarmenn skilja ekki," segir Björn. Að lokum segir Björn að engan þurfi að undra að illa sé fyrir flokki komið sem „sem grípur mál eins og þetta og efnir til fundar um það, án þess að sjálfur formaðurinn skilji um hvað málið snýst. Ef Guðni gæfi sér tíma til að kynna sér vanda lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum, kæmist hann örugglega að sömu niðurstöðu og ég, að best fari á því, að hver verkþáttur embættisins sé á forræði þess ráðuneytis, sem á honum ber ábyrgð. Um þetta snýst málið en ekki persónur." Pistil Björns má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira