Ráðast í aðgerðir til þess að vinna gegn verðlagshækkunum 28. apríl 2008 10:20
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita fjórar milljónir króna til aðgerða sem miðað að því að stemma stigu við hækkun verðlags og þar með verðbólgu. Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir að sökum lækkunar á gengi íslensku krónunnar og hækkunar hrávöruverðs á alþjóðlegum mörkuðum hafi skapast nokkur þrýstingur til hækkunar verðlags. Nauðsynlegt sé að gripið verði til víðtækra aðgerða gegn þessu. Eftir að hafa fundað með helstu hagsmunahópum lagði viðskiptaráðherra til nokkrar aðgerðir. Þeirra á meðal var að fela ASÍ að gera sérstakt átak í verðlagseftirliti og fylgjast með þróun vöruverðs með tíðari hætti en áður og miðli niðurstöðum sínum til almennings. ,,Nauðsynlegt er að almenningur fái greinargóðar upplýsingar um verðþróun einstakra aðila á markaði sem og þróun á verði í einstökum vöruflokkum. Slíkt er forsenda þess að neytendur geti hagað innkaupum sínum og neyslumynstri með skynsamlegum hætti á tímum örra verðbreytinga," segir í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins. Þá hefur Neytendastofu verið fail að fylgjast sérstaklega með verðmerkingum á vöru og þjóustu og endurskoða þær reglur sem gilda um verðmerkingar. Stefnt er að því að kveðið verði á um viðurlög í þeim tilvikum þegar reglum er ekki fylgt. Viðurlög verða í formi sekta og ákvarðanir birtar á heimasíðu Neytendastofu. Þá leggur ráðherra til að skipaður verði sérstakur starfshópur fjármálaráðuneytis og viðskiptaráðuneytis til að endurskoða reglur um netverslun, einkum frá öðrum löndum EES-svæðisins, með það að markmiði að auka samkeppni og lækka vöruverð. Enn fremur á að ráðast í kynningarátak í samstarfi við Neytendasamtökin í þeim tilgangi að virkja neytendur betur á vörumarkaði. Þá verður leitað samstarfs við Samtök verslunar og þjónustu um aukna hagræðingu í verslunarrekstri. Viðskiptaráðherra mun funda með forseta Alþýðusambands Íslands, forstjóra Neytendastofu og formanni Neytendasamtakanna klukkan 11 í dag um framkvæmd ofangreindra aðgerða. Þar verður meðal annars skrifað undir samning við ASÍ um framkvæmd verðkannana.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira