Rauði krossinn sendir 6 milljónir vegna átakanna í Georgíu 13. ágúst 2008 15:46 Rússneskir hermenn í Georgíu.
Rauði kross Íslands hefur sent 6 milljónir króna í neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins vegna aðgerða í kjölfar átakanna í Georgíu. Neyðarbeiðnin hljóðar upp á 600 milljónir íslenskra króna (8 milljónir svissneskra franka) og verður fénu varið til að aðstoða tugþúsundir manna sem hafa orðið verst úti í átökunum milli herliða Georgíu, Suður-Ossetíu og Rússlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Þar segir ennfremur: „Neyðarbeiðnin er send út til að tryggja brýna læknisþjónustu fyrir særða, og eins að nauðsynleg hjálpargögn berist um 60.000 manns sem er á vergangi í Suður-Ossetíu eða hefur leitað hælis í Georgíu og í Rússlandi. Þá mun Alþjóða Rauði krossinn einnig efla eftirlit með því að stríðandi aðilar komi fram við fanga í samræmi við alþjóðleg mannúðarlög. Alþjóða Rauði krossinn hefur þegar sent teymi af neyðarskurðlæknum til Georgíu, og Rauði krossinn í Noregi mun setja upp neyðarspítala í borginni Gori við landamæri Suður-Ossetíuhéraðs. Rauði kross Íslands er samningsbundinn samstarfsaðili norska Rauða krossins og hafa sérþjálfaðir sendifulltrúar félagsins í neyðarskurðlækningum þegar verið settir í viðbragðsstöðu. "Það er brýn þörf á að aðstoð berist sem fyrst þó svo að vopnahléið haldist, og sérstaklega á sviði heilbrigðisþjónustu þar sem fá eða engin sjúkrahús á svæðinu eru í stakk búin til að meðhöndla særða og sjúka við þessar aðstæður," segir Helga Þórólfsdóttir, sviðstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins, sem var sendifulltrúi í Georgíu 1997-1998 á vegum Alþjóða Rauða krossins (ICRC) og gjörþekkir því aðstæður þar. "Það er mikil þörf á sérhæfðu starfsfólki á vettvangi, og mjög líklegt að sendifulltrúar Rauða kross Íslands verði fengnir til starfa á næstu dögum eða vikum. Við munum svo meta þörfina á frekari aðstoð eftir því sem meiri upplýsingar berast um ástandið frá Rauða krossinum," bætir Helga við."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira