Innlent

Fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda á fundi í Færeyjum

Vel fór á með þeim Einari K. Guðfinnssyni og Al Gore í Færeyjum í dag.
Vel fór á með þeim Einari K. Guðfinnssyni og Al Gore í Færeyjum í dag.

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og mikilvægi verðmætasköpunar á grundvelli hennar á alþjóðlegri ráðstefnu í Færeyjum um áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar í Norður-Atlantshafi.

Fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að um 300 manns víðs vegar að úr heiminum hafi tekið þátt í ráðstefnunni, þeirra á meðal Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og Nóbelsverðlaunahafi. Eins og kunnugt er heldur Gore frá Færeyjum í dag til Íslands og mun hann halda fyrirlestur um loftlagsmál í Háskólabíói í fyrramálið.

Ráðherra greindi frá hvernig skynsamleg, hófsöm og ábyrg nýting sjávarauðlindarinnar ásamt fullum yfirráðum yfir 200 mílna efnahagslögsögu hafi skipt algjörum sköpum fyrir íslenskt samfélag. Sjávarútvegurinn hafi verið og sé burðarás efnahagslífsins. Því sé óhjákvæmilegt að hann lúti lögmálum markaðarins og hvorki geti né eigi að þiggja ríkisframlög, ólíkt því sem gerist í mörgum samkeppnislöndum Íslendinga.

„Við reiðum okkur á auðlindina og höfum byggt afkomu okkar á henni. Þess vegna hefur verið ljóst frá upphafi að það skiptir öllu máli fyrir okkur að standa þannig að nýtingu hennar að henni verði skilað í að minnsta kosti jafngóðu ásigkomulagi til afkomenda okkar og hún var í þegar við tókum við henni. Í þvi felast hagmunir okkar. Það má því kannski segja að við séum knúin áfram af hagmunum í þá átt að ganga vel um auðlindina, þótt sannarlega séu um það skiptar skoðanir hvernig staðið skuli að því," sagði Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×