Fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda á fundi í Færeyjum 7. apríl 2008 16:56 Vel fór á með þeim Einari K. Guðfinnssyni og Al Gore í Færeyjum í dag.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og mikilvægi verðmætasköpunar á grundvelli hennar á alþjóðlegri ráðstefnu í Færeyjum um áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar í Norður-Atlantshafi. Fram kemur í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að um 300 manns víðs vegar að úr heiminum hafi tekið þátt í ráðstefnunni, þeirra á meðal Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og Nóbelsverðlaunahafi. Eins og kunnugt er heldur Gore frá Færeyjum í dag til Íslands og mun hann halda fyrirlestur um loftlagsmál í Háskólabíói í fyrramálið. Ráðherra greindi frá hvernig skynsamleg, hófsöm og ábyrg nýting sjávarauðlindarinnar ásamt fullum yfirráðum yfir 200 mílna efnahagslögsögu hafi skipt algjörum sköpum fyrir íslenskt samfélag. Sjávarútvegurinn hafi verið og sé burðarás efnahagslífsins. Því sé óhjákvæmilegt að hann lúti lögmálum markaðarins og hvorki geti né eigi að þiggja ríkisframlög, ólíkt því sem gerist í mörgum samkeppnislöndum Íslendinga. „Við reiðum okkur á auðlindina og höfum byggt afkomu okkar á henni. Þess vegna hefur verið ljóst frá upphafi að það skiptir öllu máli fyrir okkur að standa þannig að nýtingu hennar að henni verði skilað í að minnsta kosti jafngóðu ásigkomulagi til afkomenda okkar og hún var í þegar við tókum við henni. Í þvi felast hagmunir okkar. Það má því kannski segja að við séum knúin áfram af hagmunum í þá átt að ganga vel um auðlindina, þótt sannarlega séu um það skiptar skoðanir hvernig staðið skuli að því," sagði Einar.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira