Verðskrá Norðlenska rúmum tíu prósentustigum fyrir neðan væntingar bænda 13. ágúst 2008 20:08
Bændasamtök Íslands eru mjög óánægð með verðskrá Norðlenska sem birti í dag, fyrst afurðasölufyrirtækja, verðskrá fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008. Hækkun Norðlenska er rúmum tíu prósentustigum fyrir neðan væntingar bænda. Margir sauðfjárbændur telja rekstrargrundvöll sinn brostinn. Þetta kemur fram á vef Bændasamtakanna. Í megindráttum eru breytingarnar fólgnar í 15% hækkun á alla kjötflokka og greiðslur fyrir kjöt til útflutnings hækka um tæp 29%. Sauðfjárbændur hafa beðið óþreyjufullir eftir verðlistum sláturleyfishafa og ljóst að rekstrargrundvöllur margra sauðfjárbúa er brostinn við þessi tíðindi. Sem kunnugt er gerðu sauðfjárbændur sér vonir um hækkanir allt að 27% eins og fram kemur í viðmiðunarverði Landssamtaka sauðfjárbænda sem þau hafa heimild til að birta samkvæmt lögum. Á vef Norðlenska er tekið fram að fyrirtækið áskili sér rétt til að breyta verðskránni til samræmis við verðskrá annarra stórra sláturleyfishafa. Þar segir einnig að verðhækkunum þurfi að koma út í verðlagið því rekstur Norðlenska geti ekki tekið þær allar á sig. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði í samtali við Bændablaðið að verðlistinn frá Norðlenska væri mikið áfall fyrir bændur og langt undir væntingum. „Bændur þurfa að mæta miklum hækkunum á aðföngum, m.a. vegna hækkana erlendis, t.d. á áburði og olíu. Þetta eru þættir í rekstrinum sem bændur hafa engin áhrif á og verða að sækja í hærra afurðaverði," segir Haraldur. Jóhannes Sigfússon, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, tók í sama streng og Haraldur. „Þessar fregnir eru mikil vonbrigði fyrir okkur sauðfjárbændur. 15% hækkun afurðaverðs dugir engan veginn til þess að mæta þeim miklu hækkunum sem orðið hafa á aðföngum eins og olíu, áburði og rúlluplasti. Þá hefur fjármagnskostnaður aukist mikið og þessi hækkun er einfaldlega alltof lítil til að mæta útgjöldum bænda," segir Jóhannes og harmar það að tölurnar séu ekki nær viðmiðunarverði Landssamtaka sauðfjárbænda sem gefið var út á sínum tíma.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira