Innlent

Líklega haldið sofandi á gjörgæsludeild næstu daga

MYND/Egill

Ökumanni jeppa sem slasaðist í árekstri jeppans, rútu og sendibíls á Suðurlandsvegi í gærmorgun er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. Ástand hans er stöðugt að sögn vakthafandi læknis á deildinni en reiknað er með því að manninum verði haldið sofandi næstu daga þar sem hann slasaðist mikið.

Tildrög slyssins voru þau að ökumaðurinn, sem ók í átt að Hveragerði, hugsðist beygja til vinstri inn á Kirkjuferjuveg og hafði nánast numið staðar til að bíða eftir rútu sem kom á móti. Þá bar að lítinn sendibíl, sem ók aftan á jeppann, sem kastaðist við það framan á rútuna og höfnuðu rútan og jeppinn utan vegar. Um þrjátíu manns voru í rútunni og hlutu fimm þeirra minni háttar áverka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×