Ferðalangi blöskrar ofsaakstur forsetabifreiðar Breki Logason skrifar 10. júlí 2008 12:07 Forsetabíllinn
Ingibjörg Bragadóttir var á leiðinni til Reykjavíkur úr Borgarnesi. Undir Akrafjalli var bíll við bíl á um 100 km hraða. Skyndilega fær Ingibjörg bíl alveg upp að afturenda bifreiðar sinnar. Henni blöskraði aksturslag bílsins og brá enn frekar í brún þegar hún sá að þarna var forsetabílinn. Hún segir að um ofsaakstur hafi verið að ræða en forsetaembættið vísar þeim ásökunum á bug. „Hann fór fram úr mér á rúmlega 110 kílómetra hraða og hvarf síðan eftir að hafa tekið fram úr fleiri bílum. Það kalla ég ofsaakstur," segir Ingibjörg sem var á leiðinni til Reykjavíkur með fimmtán ára gömlum syni sínum. Ingibjörg segir að fyrst hafi hún ekki tekið eftir að þarna væri forsetabifreiðin á ferðinni en brá enn frekar þegar hún sá númerið og íslenska fánann. „Hann var síðan að reyna að taka fram úr stórum fóðurbíl í nokkur skipti sem hann svo gerði að lokum, með þvílíkum sjéns þannig að maður svitnaði bara," segir Ingibjörg. „Ég kannast ekki við það að bílnum hafi verið ekið á óeðlilegum hraða. Hvorki undir Akrafjalli né annarsstaðar á leið sinni úr Húnaþingi," segir Örnólfur Thorsson forsetaritari í samtali við Vísi. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum Vísis gilda ekki sérstakar reglur um bifreið forseta Íslands um forgangsakstur. Bíllin er einungis í forgangsakstri ef hann er í fylgd lögreglu, sem var ekki undir Akrafjalli í gærkvöldi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira