Innlent

Nýr meirihluti í Dalabyggð

Frá Búðardal.
Frá Búðardal.

Meirihlutinn í Dalabyggð sprakk á fundi bæjarráðs í gær. Meirihlutinn hafði verið í höndum H-lista og N-lista frá 2006 en að sögn Þórðar Ingólfssonar, oddvita H-lista, náðist þá samkomulag um að oddviti N-lista, Gunnólfur Lárusson, myndi sinna starfi sveitarstjóra til tveggja ára.

Átti að endurskoða samstarfið að tveimur árum liðnum en á sveitarstjórnarfundi í gær lagði H-list fram tillögu þess efnis að Gunnólfi yrði sagt upp störfum sem sveitarstjóri og starfið yrði auglýst laust til umsóknar.

Þórður segir að þrátt fyrir að lagt hafi verið til að Gunnólfur yrði sagt upp störfum hafi H-listi samt sem áður sýnt vilja til að starfa áfram með N-lista og halda áfram núverandi meirihlutasamstarfi. N-listi uni hins vegar ekki þessari niðurstöðu og vildi halda áfram óbreyttu samstarfi með Gunnólf sem sveitarstjóra. H-listi vildi hins vegar ekki samþykkja slíkt og meirihlutinn var því sprunginn.

Nýr meirihluti hefur enn ekki verið myndaður en Þórður telur fullvíst að samið verði um nýjan meirihluta strax á næstu dögum milli H-lista og V-lista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×