Innlent

Ruddust inn í íbúð

Fimm manns ruddust inn í íbúð í Naustahverfi í Reykjavík um klukkan fjögur í nótt til að gera upp einhverjar sakir við húsráðanda. Tveir brutu sér leið inn um svaladyr og opnuðu fyrir hinum þremur.

Þegar þeim varð ljóst að húsráðandi var búinn að kalla á lögreglu lagði fólkið á flótta en lögregla náði því ýmist í bíl þeirra eða á hlaupum og bíður það nú í fangageymslum lögreglu eftir að verða yfirheyrt í dag. Húsráðanda sakaði ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×