Innlent

Samið við hjartalækna til tæpra tveggja ára

Samninganefnd heibrigðisráðherra og hjartalæknar hafa gert samning um þjónustu þeirra síðarnefndu sem sögðu sig af samningi fyrir liðlega tveimur árum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Með samkomulaginu sem nú hefur verið undirritað er ekki lengur gerð krafa um tilvísun frá heilsugæslu- eða heimilislækni. Sjúklingar þurfa heldur ekki lengur að leggja út fyrir öllum kostnaði vegna þjónustu hjartalækna og sækja síðan um endurgreiðslu á hluta hans til Tryggingastofnunar ríkisins. Með samkomulaginu þurfa sjúklingar einungis að greiða hjartalækni hlutdeild sína í hinum umsamda kostnaði við þjónustuna.

Samningurinn gildir um alla hjartalækna sem voru í starfi í apríl 2008 og tekur til þjónustu sem veitt er utan sjúkrahúsa. Hafa læknar frest til 1. júní til að staðfesta aðild sína að samningum en samningurinn gildir frá 5. maí 2008 til og með 31. mars 2010.

 

Samningurinn milli samninganefndar heilbrigðisráðherra og hjartalækna er á sömu nótum og samningur sem undirritaður var fyrir skömmu og tekur til þjónustu annarra sérfræðilækna. Meginmarkmið með samningum við hjartalæknana er að tryggja bætta þjónustu við hjartasjúklinga og gera leið sjúklinga að þjónustu þeirra greiðari og sambærilega við það sem gildir um aðra sérfræðiþjónustu, eins og segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.

Kostnaður við samninginn er sagður um 306 milljónir króna á ársgrundvelli og þar af hlutur Tryggingastofnunar tæpar 200 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×