Innlent

Fær ekki 450 milljónir frá ríkinu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði dag íslenska ríkið af nærri 450 milljóna króna skaðabótakröfu Gunnars Arnar Kristjánssonar, fyrrverandi forstjóra SÍF, vegna meðferðar lögreglu og ákæruvalds á máli sem hann tengdist.

Gunnar var meðal annars ákærður fyrir brot á lögum um endurskoðun í tengslum við fjárdráttarmál hjá Tryggingarsjóði lækna. Hafði framkvæmdastjóri sjóðsins orðið uppvís að því að hafa dregið sér 75 milljónir króna en Gunnar var endurskoðandi sjóðsins og áritaði reikninga hans án þess að gera athugasemdir við þá.

Gunnar var sýknaður af ákæru í héraðsdómi en Hæstiréttur vísaði málinu frá. Var í kjölfarið ákveðið að halda rannsókn málsins áfram en sú rannsókn dróst og var ákveðið að henni skyldi hætt. Vildi Gunnar fá bætur vegna þessarar málsmeðferðar, samtals 449 milljónir króna, frá ríkinu en á það féllst héraðsdómur ekki.

Sagði hann að Gunnar hefði ekki sýnt fram á að lögregla eða ákæruvald hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi eða ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu hans. Þá yrði meint tjón hans vegna tapaðra launa, miska og spjalla á viðskiptahagsmunum og lánstrausti ekki rakið til sakar ríkisins. Var ríkið því sýknað af bótakröfunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×