Innlent

Ræddi við breskan starfsbróður sinn um heilbrigðismál

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og starfsbróðir hans, Alan Johnson
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og starfsbróðir hans, Alan Johnson

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra átti síðdegis í gær fund með breska heilbrigðisráðherranum, Alan Johnson.

Fram kemur á vef heilbrigðisráðuneytisins að ráðherra hafi í Lundúnum kynnt sér starfsemi tiltekinna sjúkrahúsa og átt fundi með heilbrigðisyfirvöldum þar sem meðal annars heilsustefna, forvarnastarf og skipulag heilbrigðisþjónustunnar hefur verið efst á baugi. Guðlaugur hitti svo bæði Dawn Primarolo, ráðherra lýðheilsu- og forvarna og heilbrigðisráðherrann Alan Johnson í breska þinghúsinu.

„Á fundinum með Alan Johnson ræddu þeir Guðlaugur breytingarnar sem gerðar hafa verið á heilbrigðisþjónustunni í Bretlandi og kom þar fram af hálfu breska ráðherrans að almenn sátt væri með breytingarnar og fæstir vildu hverfa aftur til þess tíma sem var áður en breytingarnar urðu. Ræddu ráðherrarnir sérstaklega hvernig Bretum hefur gengið að greina á milli kaupanda og seljanda í heilbrigðisþjónustunni þar í landi og hverju þessi breyting hefði skilað. Á fundi ráðherranna bauð heilbrigðisráðherra starfsbróður sínum í heimsókn til Íslands sem sá síðarnefni þáði," segir enn fremur á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Guðlaugur Þór Þórðarson heimsækir í dag Moorfields Eye Hospital, sem er virtur augnspítali á sínu sviði, en þessi spítali hefur þjónað íslenskum sjúklingum í meira en tvo áratugi. Í heimsókn sinni á spítalann afhendir Guðlaugur Þór Þórðarson stjórn og starfsmönnum spítalans viðurkenningu fyrir þá góðu þjónustu sem Íslendingar hafa notið á spítalanum í áranna rás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×