Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 14 prósent á einu ári 23. apríl 2008 13:51
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda jókst úr rúmum 3,7 milljónum tonna árið 2005 í rúm 4,2 milljónir árið 2006. Aukningin nemur 525 þúsund tonnum eða 14 prósentum. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Umhverfisstofnun hefur tekið saman fyrir skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn. Segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu að aukningin sé mun meiri en spár hafi gert ráð fyrir. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur óskað eftir nýrri spá frá Umhverfisstofnun og mati á því hvort líkur séu á að Ísland fari fram úr skuldbindingum sínum samkvæmt Kýótó-bókuninni. Stærstur hluti aukningar frá áliðnaði Fram kemur í tilkynningunni að stærsta hluta aukningarinnar megi rekja til aukinnar losunar frá áliðnaði, sem jókst um 404 þúsund tonn milli 2005 og 2006, eða um 89 prósent. Aukningin er öll frá álveri Norðuráls á Grundartanga og tengist stækkun álversins þar.Losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum jókst um 146 þúsund tonn milli áranna 2005 og 2006, eða um 17 prósent, að langmestu leyti vegna vegasamgangna. Umhverfisráðherra óskar eftir því að Umhverfisstofnun skoði losun frá samgöngum og beri saman losun á mann á Íslandi og í öðrum ríkjum sem bera skuldbindingar í loftslagsmálum.Losun frá sjávarútvegi dróst hins vegar saman um 113 þúsund tonn á milli áranna 2005 og 2006, eða um rúm 15 prósent. Samdráttur var í losun bæði frá fiskiskipaflotanum og fiskimjölsverksmiðjum. Losun frá landbúnaði jókst um 33 þúsund tonn, eða um tæp 7 prósent.Á árunum 1990 til 2006 jókst losun gróðurhúsalofttegunda um nærri fjórðung. Á skuldbindingartímabili Kýótó-bókunarinnar, 2008-2012, má losunin á Íslandi ekki aukast meira en 10 prósent miðað við losun árið 1990. Að auki hefur Ísland sérstaka heimild til aukningar á losun koldíoxíðs frá stóriðju, íslenska ákvæðið.Ráðherra fundar með álfyrirtækjum„Auk þess að óska eftir nýrri losunarspá frá Umhverfisstofnun, mun ráðherra boða fulltrúa álfyrirtækjanna til fundar til þess að ræða skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Árangur hefur náðst á undanförnum árum í minnkun á losun PFC og hefur losunin hérlendis síðustu ár verið með því lægsta sem þekkist á tonn af framleiddu áli. Yfirleitt er nokkur aukning á losun í upphafi starfstíma álvera eða þegar nýjar framleiðslueiningar eru teknar í notkun. Á fundinum með álfyrirtækjunum verður farið yfir þessa losun, hvort hætta sé á því að hún verði meiri en spáð hafði verið og til hvaða ráðstafana sé hægt að grípa ef í það stefnir," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira