Útilokar ekki skaðabótamál á hendur borginni 5. ágúst 2008 12:15
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir útilokar ekki að sækja skaðabætur til borgarinnar vegna ákvörðunar borgarstjóra að reka hana úr skipulagsráði. Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður telur yfirvofandi brottrekstur brot á sveitarstjórnarlögum. Dögg Pálsdóttir segir á bloggsíðu sinni að hún telji að sá gjörningur Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra að reka fyrrverandi aðstoðarmann sinn, Ólöfu Guðnýju, úr skipulagsráði borgarinnar hafi verið ólögmætur. Brottvísunin standist ekki sveitarstjórnarlög. Ástæðan sem Ólafur F. hefur gefið upp, að Ólöf Guðný njóti ekki lengur trausts hans, nægi ekki. Ef skipta eigi út fulltrúa í nefnd þurfi að vera eining um brottvikninguna eða fyrir henni málefnalegar ástæður samkvæmt lögum. Borgarstjóri getur nefnilega ekki rekið Ólöfu upp á sitt einsdæmi, borgarráð þarf að staðfesta brottreksturinn en næsti fundur hans er á fimmtudaginn. Því spyr Dögg hvort borgarfulltrúar sjálfstæðismanna ætli að samþykkja þennan gjörning og bera þar með ábyrgð á vinnubrögðum af þessu tagi. Ef mat Daggar er rétt, segir Sigurður Líndal lagaprófessor í Fréttablaðinu í dag, þá getur Ólöf krafist skaða- og miskabóta. Ólöf kveðst þakklát Dögg fyrir stuðninginn. Ólöf segir þennan gjörning hættulegan lýðræðinu. Hún kveðst ætla að bíða og sjá til hvort borgarráð kýs hana út úr skipulagsráði áður en hún tekur ákvörðun um hvort hún höfði skaða- og miskabótamál á hendur borginni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira