Innlent

Síbrotamaður fékk 18 mánaða fangelsisdóm

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Ragnar Davíð Bjarnason í 18 mánaða fangelsi fyrir vörslu fíkniefna og fyrir að aka bifreið án réttinda.

Ragnar Davíð játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Hann hefur margoft verið dæmdur í fangelsi og var á skilorði þegar brotin, sem hann var dæmdur fyrir í dag, voru framin. Þótti hæfileg refsing ákærða því 18 mánuðir.

Greint var frá því í lok maí þegar Ragnar Davíð var stunginn í söluturni við Colbjörnsgade í Kaupmannahöfn. Dönsku lögreglunni þótti þá ljóst að Ragnar Davíð hefði ögrað árásarmanninum og ákvað að aðhafast ekki í málinu.

Þá sagði DV frá því að Sæmundur Pálsson, fyrrverandi lögreglumaður, sneri Ragnar Davíð niður einn síns liðs þegar Ragnar Davíð braust inn hjá honum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×