Landeigendur rukka fyrir myndatökur á Jökulsárlóni 25. júlí 2008 19:43
Landeigendur við Jökulsárlón hafa af því nokkrar tekjur að rukka fyrir myndatökur á lóninu. Venjulegir ferðamenn sleppa þó við gjaldtöku. Hvöss umræða hefur verið um gjaldtöku á ferðamannastöðum undanfarna daga vegna deilna ferðaskrifstofa og eigenda Kersins í Grímsnesi. Slík gjaldtaka er þó fráleitt ný af nálinni, hvorki hérlendis né erlendis. Þannig hafa eigendur Jökulsárlóns lengi fengið greitt fyrir ferðamenn sem um lónið fara. Þeir hafa einnig haft nokkrar tekjur af þeim sem þar vilja taka myndir. Þá er verið að tala um myndatökur vegna atvinnustarfsemi. Jónas Runólfsson, talsmaður landeigenda sagði í samtali við fréttastofuna að talsvert væri um slíka viðburði. Við lónið hafa verið teknir upp kaflar fyrir tvær James Bond myndir og líka fyrir kjarnakonuna Löru Croft í Tomb Raider. Þá er lónið vinsælt svið fyrir sjónvarpsþætti og auglýsingar. Jónas sagði að þegar farið væri í atvinnuskyni inn á land annarra til þess að framleiða þar vöru sem hægt væri að selja fyrir háar upphæðir erlendis, væri sjálfsagt að landeigendur fengju eitthvað fyrir sinn snúð. Venjulegir ferðamenn sem hefðu sínar myndavélar með í bátsferðum um Jökulsárlón væru hinsvegar alveg látnir í friði.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira