Virkjun og stækkun getur farið saman 14. júlí 2008 15:38 Óskar Bergsson
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, hefur lýst því yfir að það sé hans skoðun að friðlýsa eigi Þjórsárver og hætta við Norðlingaölduveitu. Hægt er að taka undir með ráðherranum um mikilvægi þess að stækka friðlandið, en fara þarf hægar í sakirnar þegar Norðlingaölduveita er slegin af. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Óskar Bergsson formaður Samvinnunefndar miðhálendis. Þar segir ennfremur: „Norðlingaölduveita hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu tillögum og hefur verið að þróast frá stóru söfnunarlóni að litlu inntakslóni þar sem vatni verður dælt yfir í Þórisvatn. Hugmyndir um frekari Kvíslarveitur hafa verið slegnar af og fyrir liggur samþykkt um Norðlingaölduveitu sem er langt frá þeim tillögum sem lagt var af stað með í upphafi. Samvinnunefnd miðhálendis, sem er skipulagsvald á hálendi Íslands, lagðist gegn Norðlingaölduveitu í ágúst 2005 vegna þess að hluti þeirrar framkvæmdar gerði ráð fyrir því að veita vatni frá Þjórsárverum í gegnum Kvíslarveitur og þurrka þannig upp mikilvægt vatnasvið svæðisins. Nefndin samþykkti hins vegar Norðlingaölduveitu í 567,5 m.y.s., án set- og veitulóna og mannvirkja tengdum þeim, þar sem hún taldi að við þær breytingar væru umhverfisáhrifin orðin ásættanleg. Norðlingaöldulón í 567, 5 m.y.s. mun að mestu leyti rúmast í núverandi árfarvegi Þjórsár og því eru umhverfisáhrif lóns af þessari stærðargráðu hverfandi. Samþykkt samvinnunefndarinnar gerir ráð fyrir því að nýta vatn sem rennur frá Þjórsárverum, án þess að það valdi skaða á vistkerfi veranna. Vegna ummæla ráðherrans um að slá Norðlingaölduveitu af er mikilvægt að rifja upp að fyrir liggur sáttatillaga samvinnunefndarinnar um verndun Þjórsárvera og skynsamlega nýtingu í efsta hluta Þjórsár. Þetta þarf iðnaðarráðherra að skoða betur áður en grænum og góðum virkjunarkosti er varpað fyrir róða."
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira