Algjör einhugur í hópi ljósmæðra 9. september 2008 10:36
Algjör einhugur er meðal ljósmæðra í kjarabaráttu þeirra að sögn Guðlaugar Einarsdóttur, formanns Ljósmæðrafélags Íslands, sem klukkan eitt í dag fundar með samninganefnd ríkisins um nýjan kjarasamning. Vísir náði tali af Guðlaugu þar sem hún var að undirbúa samningafundinn. Aðspurð um stemmninguna í samningahópi ljósmæðra segir Guðlaug að hún sé afslöppuð og að þær fari í viðræðurnar með opnum huga. Ljósmæður hafi komið með margar hugmyndir að leiðum að sama markmiði, það er að leiðrétta kjör stéttarinnar. Ljósmæður efndu til tveggja sólarhringa verkfalls í síðustu viku og annað slíkt hefst á miðnætti á miðvikudag hafi ekki samist fyrir þann tíma. Aðspurð um andann meðal ljósmæðra segir Guðlaug að algjör einhugur sé í hópnum, „Þetta er kjarabarátta sem við höfum staðið í svo árum skiptir og við erum búnar að fara í gegnum nokkra kjarasamninga til þess að fá okkar kjör leiðrétt. Nú er komið að algjörum vendipunkti og óljóst hvernig við mönnum stéttina á næstu árum ef við fáum launin ekki leiðrétt," segir Guðlaug. Ljósmæðrum hafa borist stuðningsyfirlýsingar víðs vegar að úr samfélaginu á síðustu dögum. Aðspurð segir Guðlaug stuðninginn hafa mikla þýðingu fyrir ljósmæður. „Við erum þakklátar fyrir stuðninginn og hann gefur okkur staðfestu til að halda áfram," segir Guðlaug.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira