Fjórar holur eftir og Logi langt undir Breki Logason skrifar 3. júlí 2008 16:45 Fjórmenningarnir ásamt formanni Golfklúbbs Ísafjarðar. F.v. Tryggvi Sigtryggsson, Þorsteinn Hallgrímsson, Eyjólfur Kristjánsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Logi Bergmann Eiðsson. Ljósm: GÍ. „
Við erum nánast á áætlun, eigum fjórar holur eftir sem við verðum að klára á þremur og hálfum tíma," segir Logi Bergmann Eiðsson sem staddur var í Leirunni í Keflavík í hávaða roki þegar Vísir náði af honum tali. Logi hefur farið í kringum landið og spilað golf á síðasta sólarhringnum og um leið safnað fé fyrir MND félagið. „Það má ekkert klikka, þetta á að hafast," segir Logi en síðasta holan verður spiluð í Grafarholti í Íslandi í dag klukkan 19:00. Logi segir hringinn hafa gengið ótrúlega vel en hann spilar með Ragnhildi Sigurðardóttir margföldum íslandsmeistar í golfi gegn Þorsteini Hallgrímssyni fyrrum íslandsmeistar og popparanum Eyjóli Kristjánssyni. „Við Ragga erum náttúrulega að tapa þessu og ég tek það algjörlega á mig. En málefnið er gott og stemmningin er góð," segir Logi sem ekkert hefur sofið síðan lagt var í hann. Fyrsta holan var spiluð í beinni útsendingu í Íslandi í dag í gærkvöldi. Þar skoraði Þorstein á Loga Bergmann að ef hans lið myndi sigra þyrfit Logi að raka af sér hárið, og öfugt ef illa færi. Það lítur því út fyrir að Logi verði krúnurakaður að lesa fréttir í sumar, eða hvað? „Maður náttúruelga vinnur með þessu hári. En ég er sjálfur mikið fyrir það að veðja og tek því þessu veðmáli. Við erum samt bara að tala um rúmlega burstaklippingu á leið í sveitina, þetta verður bara að vera þannig," sagði Logi hress að lokum. Hægt er að styrkja söfnunina með því að hringja í: 908 1001 - Til þess að gefa 1000 krónur 908 1003 - Til þess að gefa 3000 krónur 908 1005 - Til þess að gefa 5000 krónur Einnig er hægt að hringja í símanúmerið 1414 ef fólk vill gefa aðrar upphæðir.
Mest lesið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fleiri fréttir Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Sjá meira