Innlent

Ákærður fyrir að brjóta glerflösku á höfði manns

Tuttugu og þriggja ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir að ráðast gegn öðrum manni í miðborg Reykjavíkur í júní í fyrra. Samkvæmt ákæru á hann að hafa slegið fórnarlambið í andlitið með krepptum hnefa og tvisvar með glerflösku þannig að flaskan brotnaði.

Ákæra á hendur manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin þykir sérstaklega hættulega vegna árásarvopnsins og er maðurinn því ákærður fyrir brot á 218. grein hegningarlaga sem nær til alvarlegri líkamsárása. Fórnarlambið hlaut meðal annars glóðarauga og sár á höfði í atganginum. Það fer enn fremur fram á rúma hálfa milljón króna í skaðabætur vegna árásarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×