Fylgjast spennt með frekari tíðindum af Sjálfstæðisflokknum 17. júlí 2008 21:00 Anna Pála Sverrisdóttir er formaður Ungra jafnaðarmanna.
Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, telja það vera sérstakt gleðiefni að hægt og rólega sé Sjálfstæðisflokkurinn að fikra sig í átt að breyttri stefnu í evrópumálum. Þetta kemur fram í ályktun frá hreyfingunni. Ungir jafnaðarmenn segja að í tillögum dómsmálaráðherra felst viðurkenning á því að peningaleg þjóðernishyggja er ekki valkostur fyrir smáþjóð í hnattvæddum heimi. Ungir jafnaðarmenn fagna þessari ,,uppgötvun dómsmálaráðherra sérstaklega og hlakka til að fylgjast með frekari tíðindum af Evrópumálum hjá samstarfsflokknum." - Ályktun Ungra jafnaðarmanna: Ungir jafnaðarmenn vilja árétta að sæti Samfylkingin ein í ríkisstjórn landsins væri Íslands nú þegar búið að sækja um aðild að Evrópusambandinu og skammt væri að bíða þess að landsmenn allir fengju tækifæri til að segja hug sinn til aðildar með þjóðaratkvæðagreiðslu. Í ríkisstjórn sitja hins vegar tveir flokkar og verður að teljast eðlilegt að stefna ríkisstjórnarinnar taki mið af áherslum þeirra beggja. Ungir jafnaðarmenn telja það því sérstakt gleðiefni að hægt og rólega sé samstarfsflokkurinn að fikra sig í átt að breyttri stefnu í Evrópumálum. Er skiljanlegt að einhver aðdragandi verði að vera að þeirri stefnubreytingu og að ýmsar misjafnlega raunhæfar tillögur líti dagsins ljós á meðan ferlinu stendur. Nú síðast hefur dómsmálaráðherra þannig lagt til að látið verði á það reyna að taka upp evruna með sérstöku samkomulagi við Evrópusambandið. Er ljóst að sú leið er ófær, eins og forsvarsmenn Evrópusambandsins hafa margoft bent á. Íslendingar standa einungis frammi fyrir tveim meginkostum - að halda sjálfstæðri krónu eða að taka upp evruna með inngöngu í Evrópusambandið. Í tillögu dómsmálaráðherra felst hins vegar viðurkenning á því að peningaleg þjóðernishyggja er ekki valkostur fyrir smáþjóð í hnattvæddum heimi, eins og Samfylkingin hefur raunar margsinnis bent á. Vilja Ungir jafnaðarmenn fagna þessari uppgötvun dómsmálaráðherra sérstaklega og hlakka til að fylgjast með frekari tíðindum af Evrópumálum hjá samstarfsflokknum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira