Enski boltinn

Lampard er milli steins og sleggju

NordcPhotos/GettyImages

Massimo Moratti, forseti Inter Milan, segir að Frank Lampard hjá Chelsea viti ekki í hvorn fótinn hann á að stíga varðandi það hvort hann á að halda áfram hjá Chelsea eða breyta til og fara til Inter.

Lampard er á sínu síðasta ári hjá Chelsea en viðræður um framlengingu á samningi hans sigldu í strand. Inter gerði Chelsea kauptilboð í leikmanninn sem var hafnað og forráðamenn Chelsea hafa ítrekað að þeir séu tilbúnir að halda honum út samningstímann og eiga það á hættu að fá ekkert fyrir hann.

Forseti Inter segir enska landsliðsmanninn á milli steins og sleggju þessa dagana.

"Lampard er alvarlegur maður og getur ekki gert upp á milli þess hvort hann á að sýna félagi sínu hollustu eða fara og prófa eitthvað nýtt. Það verður að lokum hann sjálfur sem þarf að taka þessa ákvörðun," sagði forsetinn.

Hann segir Lampard vera fyrsta kost, en viðurkennir að félagið gæti þurft að leita annað eftir miðjumanni.

"Lampard er fyrsti kostur en við höfum verið að horfa í kring um okkur lengi. Ef við náum ekki í Lampard munum við leitast við að ná í svipaðan leikmann," sagði Moratti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×