Fangelsismálastofnun leyfir Ágústi að ganga á guðs vegum Andri Ólafsson skrifar 8. september 2008 13:19 Ágúst Magnússon
Ágúst Magnússon er enn á reynslulausn og þarf því sérstakt leyfi frá fangelsismálayfirvöldum til þess að sækja biblíuskólann í Uppsölum. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag flutti Ágúst til Svíþjóðar skömmu eftir að hann losnaði úr fangelsi en þar hafði hann setið vegna dóms sem hann fékk fyrir að níðast á fimm drengjum. Í Svíþjóð hóf Ágúst nám við biblíuskóla Livets Ord safnaðarins. Enginn heimavist er í skólanum og hefur Ágúst leigt íbúð með fjórum mönnum undandarið. Það fyrirkomulag hefur hins vegar verið til bráðabirgða og samkvæmt upplýsinum Vísis hefur Ágúst ákveðið að taka á leigu herbergi á heimili hjóna með tvö börn. Hjónin eru meðlimir í Livets Ord söfnuðinum en safnaðarmeðlimum hefur ekki verið greint frá bakgrunni Ágústs á Íslandi. Ágúst óskaði eftir því við skólastjóra biblíuskólans að öllum upplýsingum um brot hans gegn börnum á Íslandi yrði haldið leyndum fyrir safnarmeðlimum. Sem fyrr segir er dvöl Ágústs í Uppsölum háð leyfi fangelsisyfirvalda á meðan hann er enn á reynslulausn. Samkvæmt heimdildum Vísis fær Ágúst þetta leyfi að uppfylltum ströngum skilyrðum fangelsismálastofnunnar. Vísir hefur til að mynda þær upplýsingar að Ágúst þurfi að fljúga heim til Íslands oftar en einu sinni á mánuði til þess að hitta sérfræðinga sem fylgjast með framgangi hans. Sinni Ágúst ekki þessum skilyrðum er litið svo á að hann hafi brotið gegn skilmálum um reynslulausn. Hann mun því þurfa að ljúka afplánun sinni í fangelsi. Sérfræðingarnir sem Ágúst þarf að hitta eru félagfræðingar, sálfræðingar og læknar. Þeir hafa ekki haft samband við Staffan Moberg, skólastjóra Livets Ord biblíuskólans, til þess að fá upplýsingar um gang mála hjá Ágústi í Uppsölum. Staffan ræddi við Vísi í morgun um mál Ágústs. Páll Winkel fangelsismálastjóri sagðist í samtali við Vísi í hádeginu ekki geta rætt málefni skjólstæðinga fangelsismálastofnunnar opinberlega.
Tengdar fréttir Barnaníðingur í biblíuskóla Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð. 8. september 2008 12:15 Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Sjá meira
Barnaníðingur í biblíuskóla Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð. 8. september 2008 12:15