Myndar íslenska hryðjuverkamenn sev skrifar 20. október 2008 16:53 Hryðjuverkamenn? „
Ég er að fara að mynda hryðjuverkamenn. Það er víst mikið af þeim hérna, en þeir virðast vera dulbúnir sem ungabörn og gamalmenni," segir ljósmyndarinn og „hryðjuverkamaðurinn" Þorkell Þorkelsson. Ástæða þessarar óvenjulegu myndatöku Þorkels er ákvörðun breskra yfirvalda að beita hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslensku bankanna í Bretlandi. Gjörning sem hann segir hafa valdið íslensku þjóðinni og ímynd Íslands á alþjóða vettvangi ómældum og óbærilegum skaða. „Ég var bara svo móðgaður yfir þessu þegar Brúnn og Ljúflingur settu þessi lög á okkur. Eitt kvöldið var ég svo reiður að ég gat varla sofnað, og vaknaði svo morguninn eftir með þessa hugmynd til að sýna hvers lags óþjóðalýður býr hér," segir Þorkell. Á miðvikudaginn ætlar hann að bjóða landsmönnum, sem þurfa að sitja undir þessum hryðjuverkastimpli, að láta mynda sig með „vopn sín" hver svo sem þau eru. Börn með snuðin sín, smiðir með hamra, skrifstofublókir með penna, hárskerar með kamb og svo framvegis. „Svona Íslandshreyfing Al Kaída," segir Þorkell og ítrekar að afar mikilvægt sé að allir mæti „vopnaðir." Þorkell hefur töluverða reynslu af því að starfa á stríðssvæðum, þar á meðal í Írak, Afganistan og ýmsum Afríkuríkjum, og segist þess vegna treysta sér í þetta stórhættulega verkefni. „Ég fer bara í skothelda vestið og reyni að hafa opnar dyr sem ég get skotist út um," segir Þorkell kíminn. Myndatakan fer fram á næstkomandi miðvikudag í húsnæði Sönglistar í Borgartúni 1, gegnt Rúgbrauðsgerðinni. Þorkell reiknar með því að vera að störfum meira og minna allan daginn, og vill sérstaklega hvetja Breta sem eru búsettir hér til að mæta. „Þessu er ekki beint gegn Bretum," segir Þorkell. „Bretar eru vinir okkar. Það eru bara þessir labbakútar Ljúflingur og Brúnn sem við þurfum að ulla svolítið framan í." Ætlunin er að setja upp sýningu með myndunum sem allra fyrst og „koma þar með á framfæri með beittu háði fordæmingu á þeim ruddaskap sem bresk stjórnvöld hafa sýnt í garð lítillar herlausrar vinaþjóðar."
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Sjá meira