Segja N1 skulda viðskiptavinum umtalsverða lækkun 8. ágúst 2008 16:17 Runólfur Ólafsson er framkvæmdstjóri FÍB.
Forsvarsmenn Félags íslenskra bifreiðaeigenda segja olíufélagið N1 skulda viðskiptavinum sínum umtalsverða lækkun á verði eldsneytis í samræmi við lækkun heimsmarkaðsverðs. Þá segir einnig í harðorðum pistli á heimasíðu FÍB að tómt mál sé að tala um þjóðarsátt fyrir daufum eyrum olíukónganna hjá N1. Tilefni greinarinnar er sú ákvörðun N1 í dag að hækka verð á bensíni um tvær krónur á lítra og um eina krónu á dísillítranum. Hjá N1 kostar bensílítrinn nú kr. 168,70 og dísilolían kostar kr. 184,60. Hækkanir voru einnig hjá dótturfélaginu EGO. Ekki réttlætanleg hækkun í morgun „Ef fréttamenn fjölmiðla leita eftir skýringum á hækkuninni í dag hjá N1 munu forsvarsmenn fyrirtækisins án efa benda á að gengi íslenskrar krónu gagnvart Bandaríkjadal hafi veikst um á þriðja prósent nú í morgun, föstudaginn 8.8.08. og því hafi hækkunin verið nauðsynleg, þar sem heimsmarkaðsverð olíu sé reiknað í dollurum," segir í pistlinum og bætt við: „En vonandi munu fréttamenn þá minna þá á að á sama tíma og fyrrnefnd veiking krónunnar varð, hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað um rúmlega 1,5% það sem af er degi. Hækkunin í morgun hjá N1 og dótturfyritækinu EGO er því ekki réttlætanleg þrátt fyrir veikingu íslensku krónunnar." FÍB bendir á að talsmenn olíufélaganna hafi ekki hirt um það að svara gagnrýni á það að olíufélögin hafi ekki skilað til neytenda lækkun á heimsmarkaði. Gagnrýni hafi verið svarað með hótfyndni um þekkingarleysi hjá FÍB og skorti á upplýsingum, sem hvort tveggja sé rangt. Bensín ætti að vera tíu krónum ódýrara „Það stendur greinilega ekki á N1 að hækka bensín og dísilolíu um leið og gengið lækkar. Það sýnir hækkunin fyrr í dag skýrt. N1 hefur heldur ekki verið lengi að því að hækka verðið þegar heimsmarkaðsveriði steig. N1 er hins vegar mun seinna til þegar heimsmarkaðsverð á olíu lækkar og/eða gengi krónunnar hækkar," segir einnig í pistlinum.FÍB bendir á að kostnaðarverð á hvern lítra af bensíni og dísilolíu sé svipað og það var snemma í liðnum maí. Nýja verðið hjá N1 frá því í morgun sé nærri 10 krónum hærra á hvern bensínlitra miðað við verðið eins og það var fyrir þremur mánuðum og dísillítrinn sé hvorki meira né minna en um 18 krónum dýrari nú.„Það er greinilega tómt mál að tala um þjóðarsátt fyrir daufum eyrum olíukónganna hjá N1 - stærsta olíufélaginu á Íslandi. En spyrja má hvort þetta sé það viðskiptasiðferði sem stjórnendur fyrirtækisins vilja láta kenna sig við??? Þeirra er valið," segir að lokum í pistlinum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira