Samvera fjölskyldunnar besta uppeldisaðferðin Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 31. júlí 2008 16:59 MYND/Tryggvi Már
Okkar markmið er að foreldrar standi sig í uppeldinu almennt. En fyrir verslunarmannahelgina þá erum við að hvetja til þess að fjölskyldan sé saman, að samvera fjölskyldunnar sé besta uppeldisaðferðin," segir Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnafjarðarbæjar og einn af aðstandendum SAMAN-hópsins á vegum Lýðheilsustöðvar. SAMAN-hópurinn reynir að minna foreldra og forráðamenn á mikilvægi þess að verja tíma með börnum sínum og hefur nú, líkt og áður, lagst í sérstaka herferð fyrir verslunarmannahelgina í ár. SAMAN-hópurinn hefur verið starfandi frá aldamótunum „þegar menn sáu fyrir sér að öll þjóðin ætlaði á fyllirí," eins og Geir orðar það. Árangurinn af því starfi þótti góður og var í kjölfarið haldið starfinu áfram. Segir Geir að allir aðilar sjái töluverðan mun á öllu hegðunarmynstri unglinga, barna og fjölskyldna þeirra til hins betra eftir að átakinu var hrint stað. Umhyggja og eðlilegt eftirlit Geir gerir sér hins vegar grein fyrir því að það er erfitt verkefni að fá unglinga til að ferðast með fjölskyldum sínum um verslunarmannahelgina eða til að ferðast saman yfir höfuð. „Ég veit til þess að fullorðið fólk hafi farið með börnunum sínum á Hróarskelduhátíðina og til Eyja. Ég held því að unglingar geti farið á allar skemmtanir en þá að fjölskyldueiningin sé að fara saman. Það er samt alveg í lagi þó verið sé að slaka á taumnum þegar komið er á svona hátíðar, maður má ekki vera of mikil Grýla heldur fylgjast vel með því okkur þykir vænt um börnin okkar. Þetta kallast umhyggja og eðlilegt eftirlit. Það er í himnalagi að börn séu að fara á svona skemmtanir, við hvetjum einfaldlega fjölskylduna til að vera saman," útskýrir Geir. „Sjálfur fer ég með fjölskylduna til útlanda yfir hátíðarnar þannig að það er tryggt að unglingarnir eru á réttum stað," segir Geir kíminn að lokum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira