„Voru eitt sólskinsbros“ 9. september 2008 11:59 Hluti hópsins á Keflavíkurflugvelli í gærkvöld. MYND/Anton Brink
Palestínsku flóttamennirnir sem hingað komu í nótt voru furðuvel á sig komnir þrátt fyrir erfitt ferðalag frá Írak að sögn Lindu Bjarkar Guðrúnardóttur, verkefnisstjóra móttökunnar. Vísir náði tali af Lindu Björk í morgun en hún var í hópi þeirra sem fylgdu flóttamönnunum til landsins síðasta spölinn, frá Heathrow-flugvelli. Aðspurð sagði hún hópinn hafa verið mjög þreyttan eftir langt ferðalag. „Þau voru þó furðuvel á sig komin þegar við hittum þau á Heathrow og voru eitt sólskinsbros og full eftirvæntingar," segir Linda Björk. Aðspurð hvað bíði flóttamannanna 29 í dag segir Linda Björk að aðstandendur móttökunnar muni hitta hópinn seinni partinn og aðstoða fólkið við að fylla út umsóknir vegna dvalarleyfis og þess háttar. Þá fari hópurinn í heilsufarsskoðun. „Síðan eftir um tíu daga byrjar það að byggja upp rútínu, yngstu börnin fara í aðlögun á leikskóla og þau eldri fara í íslenskukennslu í grunnskólanum. Mæðurnar fara svo í íslenskukennslu og samfélagsfræðslu," segir Linda Björk. Fólkið býr allt á svokölluðum Neðri-Skaga á Akranesi og að sögn Lindu Bjarkar nærri grunnskólanum. Tiltölulega stutt sé á milli íbúða þeirra og henni hafi heyrst á fjölskyldunum að þær væru ánægðar með það. Það kom í hlut stuðningsfjölskyldna palestínsku fjölskyldnanna að undirbúa íbúðir þeirra og í nótt þegar hópurinn kom á Akranes tóku stuðningsfjölskyldurnar á móti þeim og buðu þau velkomin. Rauði krossinn á Akranesi standsetti íbúðir flóttamannanna og að sögn Lindu Bjarkar hafa stuðningsfjölskyldurnar undirbúið sig af kappi undanförnu. „Þau hafa verið í hörkuvinnu í langan tíma," segir Linda Björk.
Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Sjá meira