Innlent

Hátt í þúsund lítrar af olíu láku í Sundahöfn

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú að því að hreinsa upp 900-1000 lítra af dísilolíu sem láku úr flutningaskipinu Laxfossi fyrr í dag.

Tilkynnt var um lekann um þrjúleytið og voru bæði bátar slökkviliðs og bílar sendir á vettvang ásamt mengunarteymi slökkviliðsins. Fljótlega tókst að komast fyrir lekann en skipið liggur við bryggju við korngeymslurnar í Sundahöfn og að sögn slökkviliðs var um 800 fermetra olíuflekkur í höfninni.

Menn eru nú á lóðsinum og dreifa niðurbrotsefni yfir olíuflekkinn og þá er dælubíll á staðnum sem dælir olíumenguðum sjó upp úr höfninni. Að sögn slökkviliðs er tölvuerð vinna fram undan en það fari eftir veðri og sjávarföllum hversu langan tíma hreinsunin taki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×