Telur að ráðið verði tímabundið í embætti borgarritara 6. júní 2008 13:39 Þorleifur Gunnlaugsson
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vinstri grænna telur að ,,ráðið verði tímabundið í embætti borgarritara fram að áramótum og á meðan verði staðan auglýst." Nái tillagan fram að ganga verður það í annað sinn á þremur árum sem embættið er stofnað. Stutt er síðan að Jakob Frímann Magnússon var ráðinn tímabundið sem framkvæmdastjóri miðborgarmála og olli ráðning hans talsverðu fjaðrafoki. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lagði til á fundi borgarráðs í gær að embætti borgarritara verði stofnað að nýju. Því er ætlað að ,,auka skilvirkni, efla þjónustu og styrkja innviði Ráðhússins," eins og segir í tillögu Ólafs sem vísað var til stjórnkerfisnefndar sem kemur saman á mánudaginn. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi og formaður nefndarinnar vildi ekkert láta hafa eftir varðandi málið fyrir en nefndin hefði komið saman. Fer eftir starfandi meirihluta Staða borgarritara var lögð niður í tíð R-listans. Eftir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var myndaður var ákveðið að stofna embættið á nýjan leik. Auglýst var eftir umsóknum í júní 2007 og sóttu fjórir einstaklingar um embættið. Meirihlutinn náði ekki að stofna embættið á nýjan leik og ganga frá ráðningunni. Eftir að Tjarnarkvartettinn svokallaði var myndaður í október var hætt við allt ferlið. ,,Einfaldara og skilvirkara stjórnskipurit borgarinnar var ástæða þess að sú ákvörðun var tekin," segir Þorleifur. Hann segir jafnframt að embættið kalli á frekari fjárútlát. Óróleiki innan borgarkerfisins Mikill óróleiki er innan stjórnkerfis borgarinnar að mati Þorleifs. ,,Það eru búnar að vera miklar skipulagsbreytingar og óánægja meðal starfsmanna er mikil. Okkur þykir meiri ástæða til að róa þetta niður heldur en að taka embættið aftur upp."
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fleiri fréttir Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent