Afli úr íslenskum skipum verði seldur á Íslandi 17. nóvember 2008 17:34
Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda vilja að allur afli úr íslenskum skipum verði seldur á Íslandi að öðrum kosti verði hann bundinn 10% útflutningsálagi. ,,Sjávarútvegsráðherra ákvað að fella niður álag á óvigtaðan óunninn fisk þann 1.september 2007, Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda bentu á að það myndi leiða til stórfelldrar aukningar útflutnings óunnins fisks, með hörmulegum afleiðingum fyrir íslenskt fiskvinnslufólk. Sá ótti er því miður staðfestur af Fiskistofu en aukningin er 35% milli ára í ýsu á fyrstu 10 mánuðum ársins og 16% ef allur afli er skoðaður," segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda 15. nóvember á Grand hótel. Samtökin hvetja Einar K. Guðfinsson, sjávarútvegsráðherra, til að stöðva þessa þróun strax, enda óþolandi að íslenskar fiskvinnslur hafi ekki aðgang að eða tækifæri til að bjóða í þetta íslenska hráefni. ,,Það hlýtur að vera eðlileg krafa íslensks fiskvinnslufólks að fiskur sem veiddur er á Íslandsmiðum sé allur vigtaður í löndunarhöfn í samræmi við íslensk lög um umgengni um nytjastofna sjávar og ráðherra víki frá þessari sérstæðu undanþágu, sem virðist hafa þau einu augljósu áhrif að skapa ósamræmi í vigtun landaðs afla og taka vinnuna af íslensku fiskverkafólki." Fyrir Alþingi liggja drög að frumvarpi sem kveða á um að allur óvigtaður afli fari á uppboðsmarkað. Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda gerir kröfu að rammi uppboðsmarkaðarins verði þannig úr garði gerður að íslensk fiskvinnsla hafi raunverulegt aðgengi að þessum afla og að allur sá afli sem ekki selst á uppboðsmarkaðnum verði bundinn 10% útflutningsálagi til að mæta þeirri rýrnun sem verður frá löndun að vigtun í erlendri höfn. Jón Steinn Elíasson var kjörinn formaður samtakanna á aðalfundinum.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Sjá meira