Vilja að ríkið styrki vistvænan ferðamáta 14. ágúst 2008 04:15 Strætó bs. vantar 300 milljónir Fréttablaðið/Vilhelm
Vinstrihreyfingin - grænt framboð skorar á ríkisstjórnina að hætta skattlagningu á almenningssamgöngur. Þetta kemur fram í ályktun flokksins frá því í gær. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á almenningssamgöngur en VG segir það „einungis vera orð á blaði, án innihalds.“ Ennfremur leggur VG áherslu á að gera verði almenningssamgöngur jafn réttháar og einkabílinn auk þess að minna á nauðsyn þess að styrkja vistvænni ferðamáta. Sveitarfélögin vantar um 300 milljónir króna til þess að geta haldið áfram með reksturinn taplaust. Bæjarstjórar Kópavogs og Hafnarfjarðar hafa báðir lýst óánægju sinni með afskiptaleysi ríkissins af rekstri Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu. Á Norðurlöndunum tekur ríkið umtalsverðan þátt í rekstri almenningssamgangna. Einar Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustusviðs Strætó bs., sagði í samtali við Fréttablaðið að stjórnvöld í Svíþjóð, Noregi og Danmörku hafi markað þátttöku sína með niðurfellingu olíugjalds. „Í Danmörku hefur ríkið endurgreitt olíugjaldið sem er á díselolíu. Svo eru þeir með frjálsa fjárveitingu frá ríki til sveitarfélaga sem þau nota oft til niðurgreiðslu á almenningssamgöngum.“ Þetta hefur leitt til þess að Danir ætla nú að fella niður niðurgreiðslu olíugjaldsins. „Á Fjóni er útboði nýlokið en vegna nýju reglnanna um olíugjald og fjármögnun þýðir það 20 prósenta hækkun á tilboðsverði frá verktökum,“ segir Einar. „Svíar fella niður olíugjald en hafa sömuleiðis hjálpað til við skipulag innra kerfis eins og vegamál, uppbyggingu á járnbrautarteinum og þess háttar.“ Einar segir Norðmenn haga sínum fjárveitingum eins og Svíar auk þess að hafa stutt fyrirtækið sem sér um Osló-svæðið um tæplega 260 milljónir íslenskra króna í kjölfar hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. „Vegna þess hve lágar tekjur Strætó hefur af fargjöldum reynist það okkur erfiðara að ná endum saman,“ segir Einar. „Sveitarfélögin hér þurfa að leggja miklu meira til en ríki og bæir á Norðurlöndunum.“ Einar segir þó fjölda farþega ekki eingöngu skýra skekkjuna. „Við erum með mun færri farþega á ferkílómetra auk þess að vera með víðfeðmt svæði til að þjónusta.“
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira