Ólafur væntir þess að lögreglumönnum verði fjölgað Magnús Már Guðmundsson skrifar 18. júlí 2008 17:20
Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, væntir þess að lögreglumönnum í Reykjavík verði fjölgað. Fyrr í dag fundaði hann með Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra, um löggæslumál. ,,Við viljum sjá aukna og sýnilega löggæslu að hálfu lögregluyfirvalda og það kom fram góður vilji frá ráðherra um það," segir Ólafur og bætir við að þrýsta verði á málefni lögreglurnar verði sett í meiri forgang og fjárlaganefnd Alþingis þurfi að taka málið upp. Aðspurður hvort að aukinn sýnileiki felist í því að lögreglumönnum verði fjölgað sagði Ólafur; ,,Ég vænti þess en eins og ég segi telur ráðherra sig á þessu stigi málsins eiga erfitt með að fá aukinn mannafla en hann getur með skipulagsbreytingum styrkt þessa þjónustu." Ólafur segir að meirihlutinn vilji efla öryggi í borginni og af því markmiði sé unnið að heilum hug. Í því samhengi nefnir Ólafur starf miðborgarþjónanna svokölluðu sem starfa í miðborginni um helgar. Að mati ólafs hafa þeir reynst afskaplega vel. Sameiginleg niðurstaða fundar dóms- og kirkjumálaráðherra og borgarstjóra: Dóms- og kirkjumálaráðherra og borgarastjóri eru sammála um mikilvægi öflugrar löggæslu. Ávinningur sé af skipulegu samstarfi lögreglu og borgaryfirvalda. Fagnaði ráðherrann því framtaki Reykjavíkurborgar að ráða sérstaka menn til að auka öryggisgæslu í miðborginni. Samstarf af þessu tagi ætti að þróa áfram í samvinnu lögreglu og sveitarfélaga. Í því sambandi var rætt um hverfagæslu til eftirlits með tilteknum svæðum, grunsamlegum eða óeðlilegum mannaferðum og hópasöfnun unglinga og miðlun upplýsinga um slíkt til lögreglu. Hverfagæsla kæmi hins vegar aldrei í stað öflugrar löggæslu í borginni. Var ákveðið, að hugað skyldi að gerð samkomulags lögreglu og Reykjavíkur um skipulegt samstarf um hverfagæslu. Það er sameiginlegt markmið ráðherra og borgarstjóra að tryggja sem best öryggi borgaranna með öflugri löggæslu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira