Ný dönsk í kvennafangelsi 22. október 2008 06:00 Björn Jörundur, Jón Ólafs og Daníel Ágúst fyrir utan Kvennafangelsið í Kópavogi þangað sem þeir fóru með grímur sínar til frekari vinnslu. fréttablaðið/arnþór „
Við leitum fanga víða," segir Björn Jörundur tónlistarmaður. Hljómsveitin Ný dönsk hefur leitað til fanga í Kvennafangelsinu í Kópavogi með að fullgera boðsmiða á útgáfutónleika þeirra sem verða á Nasa á laugardagskvöldið. Á nýrri plötu hljómsveitarinnar Ný dönsk, Turninum, getur að líta mann sem er ekki til. Um er að ræða samsetta mynd þar sem stuðst er við andlitsdrætti hljómsveitarmeðlima. Í framhaldi af því var ákveðið að aðgöngumiðar á útgáfutónleika hljómsveitarinnar, sem verður á Nasa um næstu helgi, yrðu í formi grímu af þessum manni. „Menn geta farið í Skífuna og náð sér í grímu sér að kostnaðarlausu sem svo gildir sem miði á tónleikana," segir Björn Jörundur. Og nefnir að hann hafi svo sem ekkert á móti því að menn festi sér diskinn í leiðinni en það sé þó mönnum í sjálfsvald sett. En hvað kemur þetta allt kvennafangelsinu í Kópavogi við? „Konur ilma og allt það. Svo er lag á Turninum sem heitir „Taktu mig fastan" og annað sem heitir „Lykillinn" sem fjallar um að vera læstur úti. Allt tengist þetta á einn eða annan veg," segir Jón Ólafsson sem upplýsir að fangar í Kópavogi gegni því hlutverki að föndra við grímurnar, handfjatla þær, en á grímurnar þarf til að mynda að setja teygjur. En kvenfangarnir komast væntanlega ekki á Nasa á laugardaginn? Jón segir hljómsveitina nú vera að athuga með það hvort ekki fáist dagsleyfi fyrir þessa nýjustu vini Ný-danskra. Nýleg dæmi sýni að það séu ýmsar glufur í kerfinu. „En... jahh, við gáfum þeim í það minnsta diskinn. Þær geta hlustað á hann. Svo fá þær náttúrulega borgað fyrir þetta. Kvennafangelsið tekur að sér svona verkefni," segir Jón. Og Björn Jörundur bætir því við að þeir hafi ekki fengið að hitta fangana heldur afhendu grímurnar umboðsmanni fanganna. „Þetta er nú ekki flókið verk. Fangar taka að sér allt mögulegt. Pakka inn auglýsingadóti og ýmsum litlum verkum," segir Jóhanna Dagbjartsdóttir sem starfar við Kvennafangelsið og tók við grímunum til frekari vinnslu. Hún segist ekki hafa hugmynd um hvort hljómsveitin Ný dönsk sé í dálæti meðal fanga umfram aðra tónlistarmenn. „Halda ekki allir upp á Ný dönsk? Það er örugglega það sama hér og annars staðar."
Mest lesið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Útför Megasar Lífið Fleiri fréttir Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Sjá meira