Busta Rhymes haldið og sleppt 25. september 2008 21:26
Bandaríski rapparinn Busta Rhymes, fékk heldur óblíðar móttökur á City flugvellinum í London í dag. Rapparinn var mættur á svæðið til að taka þátt í góðgerðatónleikum á ekki ómerkari stað en Royal Albert Hall. Honum var hins vegar stungið í steininn þegar hann steig út úr einkaþotunni þrátt fyrr að vera með fullgilt atvinnuleyfi í Bretlandi. Lögregla gaf þá skýringu að Busta ætti einhver óútkljáð mál heima fyrir gagnvart þarlendri lögreglu. Lögreglumenn gáfu lítið fyrir það að stjarna væri á ferð og var honum stungið í steininn á flugvellinum og munu fimm vopnaðir verðir hafa gætt hans. Tónleikahaldarar mótmæltu hástöfum en löggan gaf sig ekki og því var brugðið á það ráð að hóa í annan rappara, Ludacris, sem stökk upp í flugvél til þess að fylla skarð Busta á tónleikunum. Eftir stapp sem tók nokkrar klukkustundir ákvað dómari að sleppa Busta, þar sem engin ástæða virtist vera fyrir þvergirðingshætti lögreglunnar á flugvellinum. Dómarinn benti meðal annars á þá staðreynd að Busta hafi haldið tónleika í ágúst í London og þá hafi hann ekki átt í nokkrum vandræðum með að komast inn í landið. Þrátt fyrir smávægilegan sakaferil hefði Busta ekki komist í kast við lögin síðustu misserin og því ákvað dómarinn að sleppa honum úr haldi. Ekki er hinsvegar ljóst á þessari stundu hvort Ludacris hafi farið fýluferð yfir Atlantsála, eða hvort honum hafi verið leyft að taka lagið í Royal Albert Hall.
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira