Innlent

Flaggað með hauskúpufána við danska sendiráðið

MYND/Frikki Þór

Einhverjir hafa farið inn á lóð danska sendiráðsins við Hverfisgötu í nótt. Samkvæmt frásögn vegfarenda hefur hauskúpufáni verið dreginn að húni auk annars fána við sendiráðið.

Auk þessa var málað stórum stöfum á húsvegginn: We will never forget, eða við munum aldrei gleyma.

Þá hafa tveir torkennilegir fánar verið dregnir að húni á fánastöngum við sendiráðið, en í logninu sést ekki almennilega hvað á þeim stendur.

Sendiráðsstarfsmenn hafa tekið þessu með ró, og laust fyrir fréttir höfðu þeir ekki einusinni gert lögreglunni viðvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×