Hætta við breytingar á kortaskilmálum 5. mars 2008 19:41
Kaupþing hefur ákveðið að hætta við umdeildar breytingar á kortaskilmálum bankans. Fjölmargar kvartanir bárust persónunefnd eftir að Stöð tvö hóf að fjalla um málið í síðustu viku. Skilmálinn átti að taka gildi næstkomandi mánudag og ná til allra greiðslukorta Kaupþings. Markmiðið var að setja alla núgildandi kortaskilmála undir einn hatt. Nokkur ákvæði í hinum nýja skilmála þóttu umdeild þar á meðal ákvæði sem gaf Kaupþingi heimild til að vinna persónuupplýsingar úr kortanotkun viðskiptavinar. Átti að nota þær upplýsingar til að búa til persónusnið svo hægt væri að senda viðkomandi viðskiptavini tilboð meðal annars í formi sms skeyta. Stöð tvö fjallaði ítarlega um málið í síðustu viku og í kjölfarið höfðu margir samband við Kaupþing til að lýsa yfir óánægju sinni með breytingarnar. Þá bárust persónuvernd fjölmargar athugasemdir frá viðskiptavinum bankans vegna málsins og þar af tvær skriflegar kvartanir. Í dag ákvað Kaupþing svo að afturkalla breytingarnar. Fram kemur í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér nú síðdegis að skilmálinn hafi valdið misskilningi og óánægju meðal viðskiptavina og því hafi verið ákveðið að falla frá breytingunum. Bankinn biður viðskiptavini sína ennfremur afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið. Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Kaupþings, segir að ákvæðið um söfnun persónuupplýsinga hafi vakið óánægju margra. "Ég held að óánægjan hafi fyrst og fremst beinst að því. það komst kannski ekki nægilega til skila af okkar hálfu að það stóð aldrei til að safna persónuupplýsinum umfram það sem almennir skilmálar e-kortsins svokallaða heimila okkur. Það stóð aldrei til að safna neinum öðrum upplýsingum," segir Benedikt.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Sjá meira