Segist heppinn að vera á lífi 18. apríl 2008 19:34
Öryggisvörður sem varð fyrir lífshættulegri árás í 10-11 við Austurstræti segist heppinn að vera á lífi. Hann segir lækna hafa unnið kraftaverk. Óttar Ómarsson starfar sem öryggisvörður hjá Öryggisgæslunni. Hann var á vakt í 10-11 í Austurstræti aðfararnótt 6. apríl þegar ráðist var hann með fólskulegum hætti. Árásarmaðurinn kom inn í verslunina í annarlegu ástandi og hafði sig mikið í frammi. Óttar bað hann vinsamlegast um að yfirgefa búðina þegar hann gerir sig líklegan til að ráðast á hann. Óttar, ásamt fleiri öryggisvörðum, yfirbuga manninn sem er fjarlægður af lögreglu. En árásarmaðurinn lét sér ekki segjast. Félagar Óttars, sem lá eftir alblóðugur og vankaður, komu honum til bjargar. Farið var með Óttar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem hlúð var að honum, en þá var ekki orðið ljóst hversu alvarlegt ástand hans var. Ástand Óttars var mjög alvarlegt á tímabili og hafa læknar tjáð honum að það sé kraftaverki líkast að hann sé enn á lífi. Blætt hafði verulega inn á heilann og næstu daga á eftir var alls óvíst að hann næði fullum bata. Hann segist allur vera að koma til þótt hann þjáist enn af svefnleysi og höfuðverkjum. Óttar segir vel hlúð að öryggi öryggisvarða í starfi sínu, en segir ástandið í miðbænum um helgar skelfilegt. Óttar segist hvergi banginn að fara aftur á næturvakt um helgar. Hann ber sig furðu vel miðað við að hafa verið milli heims og helju fyrir einungis 12 dögum en einhver tími líður þar til hann verður vinnufær. Hann segist ekki tilbúinn að fyrirgefa árásarmanninum strax.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira